Sól og blíða

Mikið verður dásamlegt að hlaupa um í hitanum í Kjarna á eftir. Hlökkum til að sjá ykkur :)

Kveðja, Bjargvættir

Posted in Almennt | Skrá ummæli

Næstu æfingar

Miðvikudaginn 16. maí hittumst við í Kjarna.

Á uppstigningardag, 17. maí verða tvær æfingar í boði, ykkar val á hvora þið mætið.

Kl:10:00 er mæting við sundlaug Akureyrar og kl:17:15 er mæting við Bjarg.

Sjáumst á hlaupum!

Posted in Almennt | Skrá ummæli

Kuldatíð

Við látum vorhret ekki á okkur fá og hlaupum frá Bjargi kl. 17:15 í dag, en gerum e.t.v. einhverjar breytingar á auglýstri dagskrá, ef færið á vellinum er ekki nægilega gott. Minnum á að veðrið lítur oft út fyrir að vera mun verra en það er og það er aldrei betra að koma inn en einmitt eftir að hafa tekist á við veðurguðina.Við hvetjum líka alla til að nýta aðstöðuna á Bjargi og hlýja sér í heitu pottunum eftir hlaup.

Posted in Almennt | Skrá ummæli

Hlaupanámskeið

Frábær byrjun á hlaupanámskeiði Bjargvætta – sól og blíða og 38 manns mættir í dag!

Hlökkum til að sjá ykkur á miðvikudaginn!

Posted in Almennt | Skrá ummæli

Hlaupanámskeið

HLAUPANÁMSKEIР 

6 vikna hlaupanámskeið hefst  mánudaginn 23. apríl og lýkur 3. júní. Æfingar eru kl:17:15 á mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum. Hlaupið er frá bílastæðinu í Kjarnaskógi á miðvikudögum, annars er lagt af stað frá Bjargi. Hlaupanámskeiðið er tvískipt – fyrir byrjendur og fyrir lengra komna. Námskeiðið byggist á fyrirlestrum og hlaupaæfingum. Námskeiðið er einstaklingsmiðað þannig að hver og einn á að fá sem mest út úr æfingunum.

Kennarar: Ólafur Óskarsson, Rannveig Oddsdóttir og Sonja Sif Jóhannsdóttir. Námskeiðsgjald er kr. 18.000. Korthafar á Bjargi borga 14.000. Skráning í síma 865-9866 eða á sonjasifj@gmail.com 

Posted in Almennt | Skrá ummæli